Mjög sterkar og vandaðar badmintonstoðir fyrir íþróttahús.
Þessar stoðir eru framleiddar fyrir mikla notkun og henta vel sem keppnisstoðir og í sali þar sem mikið er um badmintonæfingar.
Þeir eru sterkbyggðar og standa auðveldlega lóðrétt þegar netið er strengt í löglegri hæð (efri hluti netsins þarf að vera 1,524 m. yfir gólfi á miðjum vellinum og 1,55 m. yfir gólfi við hliðarlínur).
Þær eru framleiddar úr áli og eru með innbyggðu netspori sem tryggir að netið situr alltaf rétt.
Hliðarnar á netinu eru þræddar niður í súlurnar og síðan er spottinn efst á netinu strengdur yfir súluna og festur í þar til gerða festingu.
Þvermál stoða: Ø63 mm.
Þvermál á hulsum í gólfi þarf að vera: Ø63,5 mm.
Hæð: 184 cm.
Hæð yfir gólfi: 155 cm.
Þyngd: 7 kg. per stk.